Afstemming bankareikninga og merking færslna
Hvað er afstemming bankareiknings?
Afstemming bankareiknings, líka kölluð „merking reiknings“, er notuð til að yfirfara og staðfesta bókhaldið þitt til að finna og forðast allar villur og allt misræmi við raunveruleikann.
Afstemming felst í því að merkja við hverja færslu í bókhaldinu þínu með hjálp reikningsyfirlits frá bankanum þínum: yfirlitið sýnir þær færslur sem raunverulega áttu sér stað og nýtist þér því til að ganga úr skugga um að hver þeirra sé til í persónulega bókhaldinu þínu (sama upphæð, sami mótaðili og svo framvegis).
Þannig stemmir þú bókhaldið þitt af í byrjun hvers mánaðar, þegar þú færð reikningsyfirlitið frá bankanum: þegar merkt hefur verið við færslurnar og afstemmingunni er lokið er ekki lengur hægt að breyta þeim.
Hverjir eru kostir afstemminga bankareikninga?
Afstemmingar bankareikninga, eða merking færslna, hafa marga kosti fyrir bókhaldið þitt:
- Það er ekkert misræmi milli bókhaldsins þíns og raunveruleikans.
- Sérhver villa og sérhvert gleymt atriði finnst undantekningarlaust.
- Þú getur haldið „varasjóðsfærslum“ (til að gera ráð fyrir framtíðarútgjöldum) í bókhaldinu þínu og haldið samt áfram að yfirfara það gagnvart bankareikningnum. Aldrei er merkt við þessar varasjóðsfærslur og þær raska ekki afstemmingunum.
- Þegar merkt hefur verið við færslu, og hún þar með afstemmd, er ekki lengur hægt að breyta henni né eyða henni: liðnu færslurnar þínar eru staðfestar og óbreytanlegar, sem kemur í veg fyrir hættu á mistökum við notkun.
Hvernig gerir þú afstemmingu bankareiknings?
Til að sjá hvernig þú framkvæmir eða afturkallar afstemmingu bankareiknings skaltu skoða hjálparsíðuna Hvernig á að merkja við eða afstemma bankareikning.